Emilía

01.02.2007 22:30:18 / millus

krúttlegt...

ég var að horfa á fréttirnar áðan og það var verið að tala um gömul hjón sem fá ekki að búa saman :( kallinn mátti ekki flytja með kellingunni á elliheimili eða eitthvað álíka

ástæðan fyrir því að mér fannst þetta svona krúttlegt var að þau heita Sólmundur og Sumarrós 8| spáiði í því! þetta er eins og að heita Bjartur og Birta eða eitthvað álíka, þau eru líka ábyggilega búin að vera gift í 70 ár eða eitthvað og mega ekki fá að búa saman! svolítið kjánalegt finnst mér! þau eru greinilega "ment to be" þau Sólmundur og Sumarrós!

svo var annað í fréttunum að það fæddist barn í mexíkó sem var 27 merkur! 8| þetta var líka hrikalega feitt barn og fréttakellingin orðaði þetta líka svo skemmtilega; "hann var tekinn með keisara þar sem það var ekki á móður hans leggjandi að fæða þetta flykki!" :haha:

ég kíkti aðeins niður í smáralind áðan til að skipta 2 bókum. þannig var mál með vexti að ég pantaði barnabókapakka frá eddu sem átti að innihalda 11 barnabækur á 14000 kall. síðan fékk ég bækurnar sendar heim og í kassanum voru 9 barnabækur og 2 "verk að vinna" sem er einhverskonar handbók um alls kyns verk á heimilinu, viðhald á húsum og annað, ábyggilega mjög sniðug bók en ég ákvað nú að hringja upp í eddu og spurja út í þetta. hún sagði mér að fara bara í næstu bókabúð og skipta þeim, sem ég síðan gerði og fékk 14000 kr. inneignarnótu!;)

þannig að ég græddi í rauninni 9 barnabækur... og inneignarnótan gildir í ár þannig að ég nota hana bara í jólagjafir eða eitthvað því um líkt!

annars gleymdi ég að segja frá því að systir hennar mömmu átti um daginn litla 11 marka stelpu, ég á enn eftir að fara að kíkjaá hana en ég fékk að sjá myndir og hún er algjör krúsibolla!

spáiði samt í kynslóðabilinu! sara er eldri en þessi stelpa...! svona er þetta þegar foreldrar mannst eru lang elst af sínum systkinum. bróðir hans pabba átti nefnilega tvíbura í nóvember!:)

jæja, nú er ég komin með rugluna

góða nótt

Emilía...


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 22:28:27 / millus

home sweet home

jæja, þá erum við mæðgur komnar aftur á fast land eftir aldeilis svaðilför til vestmannaeyja

ferðin byrjaði nú vel, við flugum til eyja, hittum fólkið, rosa gaman, ætluðum svo heim á sunnudeginum með flugi en það var ófært vegna þoku :( biðumsvo hálfan mánudag eftir að þokunni létti sem hún gerði ekki, þannig að við enduðum í herjólfi!

mér er nú yfirleitt ekki vel við dallinn en hef nú látið mig hafa það hingað til, en þetta geri ég aldrei aftur! það var þvílíkur veltingur og ég varð svo sjóveik, ég held að ég hafi bara aldrei orðið svona sjóveik (kannski eftir einhverja þjóðhatíðina :S) ég var ælandi útum allt, plús það að ég var með söru með mér og það er svolítið erfitt að halda á litlu barni og vera ælandi á sama tíma! ég þurfti nefnilega helst að halda í hana annars var hún flogin út í næsta vegg. eða eitthvað dettandi á hausinn á henni.8|

næst þegar ég fer til eyja verður það allaveganna ekki þessa leiðina! ég er skyndilega orðin mikill stuðningsmaður gangna...

mesta svekkelsið var þó að á meðan ég var í herjólfi fór þokan og það var flogið!:frown:

annars vildi svo til að ég náði síðasta korterinu af leiknum áðan á móti dönum og ég held að ég hafi aldrei verið svo spennt yfir einhverju íþróttatengdu áður! þið sem sáuð leikinn vitið hvað ég á við! mikið rosalega vorkenni ég grey strákunum núna, ætli þeir gráti sig ekki í svefn í kvöld...:(

í morgun fór ég í vinnuna en þurfti svo að sækja söru aftur til dagmömmunnar útaf því að hún var komin með hita greyið, þannig að við fórum heim bara og verðum heima á morgun líka, sumir segja að hún hafi bara orðið veik að þessu ferðalagi líka...

veriði svo dugleg að kommenta fólk! annars nenni ég þessu ekki!:frown:

EmilíaSæfari


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 23:20:15 / millus

blogg blogg blogg

maður verður nú að standa sig í þessu bloggi, þó svo að helmingur fólks sem skoðar þessa síðu sé ekki sammála mér, hmm...!(sjá skoðanakönnun)

anyways...

við mæðgur erum fluttar heim til mömmu og pabba aftur og hér megum við dúsa þar til ég vinn í lottó-inu, sem gerist ábyggilega aldrei þar sem ég held að maður þurfi að kaupa miða ef maður vill eiga möguleika (sem eru hvort eð nánast engir!)

um helgina vorum við svo að spá í að kíkja til vestmannaeyja, heilsa upp á pabba og litlu systir, en ég held að ég hafi ekki farið til eyja síðan á þjóðhátíð hmm... tvö þúsund og...fjögur. 2004, vá! getur það verið? allaveganna hefur sara aldrei farið og ég held að það sé kominn tími til, það var þá ágætt að við vorum ekki búnar að taka uppúr töskum og kössu, auðveldara að pakka! það fylgir okkur svo mikið að dóti og drasli!

annars er ekki talað um annað þessa daganna en þennan blessaða handbolta, ég hef nú voðalega lítið við á þessu en gaman að vita að þeir eru að standa sig,:D íslenska liðið! unnu bæði frakkland og túnis og mér skilst að frakkar séu eða voru evrópumeistarar... (leiðréttið mig ef ég er að bulla)

en ég hugsa að ég fari að drífa mig í háttinn, þarf að vakna snemma á morgun, fara með stelpuna til dagmömmunnar og fara svo að vinna í kópavogi með stínu minn, jei! mér skilst að það sé svo búið að bóka mig einhversstaðar á föstudaginn en ég veit bara ekki ennþá hvar...þetta er gallinn við vinnuna mína, maður veit aldrei hvar maður á að vinna fyrr en með klukkutíma fyrirvara:S

góða nótt góðir hálsar!

Emilía...


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 14:35:19 / millus

þetta er kannski ósmekklegt...

...en þetta er ógeðslega fyndið samt...!

Gvendur á eyrinni með nýjum texta 0

Gvendur í Byrginu


Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.

Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.

Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...

En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 14:10:43 / millus

helgarfrí

jæja góðir hálsar, er ekki komin tími á blogg?

helgin er bara búin að vera ágæt, sara hjá pabba sínum og ég frjáls eins og fuglinn:)

á föstudaginn ætlaði kata að koma að djamma með mér en hún beilaði þannig að ég fór til tobbu og hún bauð mér í mat og svo fórum við að sjóða grænmeti :/ svo var ég orðin svo þreytt að ég ætlaði heldur betur að fara heim að sofa, en þar sem mér finnst svefn tímasóun í helgarfríinu ákvað ég að kíkja í starfsmannapartý. fór á bílnum og ætlaði bara aðeins að kíkja inn, var svo að tala við rúnar litla/stóra frænda um hvað mig langaði nú í smá bjór og hann sagði "blessuð vertu, við skutlum þér heim" þannig að mín endaði bara nokkuð hress og skemmti mér konunglega...:)

á laugardeginum vaknaði ég og ætlaði að fara að byrja að flytja drasl heim og uppgötvaði að bíllinn minn væri í hafnafirði 8| en hún tinna mín reddaði mér og ég bauð henni í hamborgara í staðinn;) svo reyndi ég að pakka aðeins, fór með smá drasl heim og svo endaði dagurinn heima hjá siggu þar sem við hitumst stelpurnar og höfðum það náðugt...

svo fór ég niður í bæ og hitti lise og þorlákshafnarliðið, svo fóru þau heim eða e-ð og ég varð eftir (rakst nebbla á systir mína) ég sppjallaði aðeins við hana og fattaði svo að ég væri búin að týna lyklunum mínum:cry: en það var allt í lagi, ég gisti bara hjá sólrúnu og ég á aukabíllykil (samt fúlt) ég sem týni aldrei lyklum, ótrúlegt

nú er ég bara heima að pakka niður og í kvöld er stefnana tekin austur í afmæli hjá kötu, en skvísan varð 23. ára í gær og ætlar í hafa smá boð heima hjá mömmu sinni í þorlákshöfn

svo sæki ég dóttur mína í fyrramálið og það verður gaman að sjá grísinn, það er nefnilega alltaf einkennilegt að fara að sofa og rúmið hennar tómt...

nú verð ég að drulla mér áfram

kveðja

Emilía...


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 23:12:21 / millus

er þetta bara ég...

...eða er vesen hjá öllum að blogga?

ég fór yfir á þetta bloggsvæði útaf því að ég var orðin svo pirruð að færslurnar mínar vistuðust ekki!

í þetta skiftið skrifaði ég FULLT í svokallaðan "um mig" dálk og það vistaðist ekki, þannig að nú er ég í fýlu og þið sem vitið ekkert um mig fáið ekki að vita neitt útaf því að ég nenni ekki að skrifa þetta aftur (hvað eruði annars að gera hérna ef þið þekkið mig ekki?)

annars er ekki mikið búið að gerast í dag, fór með söru til dagmömmunnar, fór í vinnuna, sótti grísinn, fór heim, þvoði þvott, braut saman, tók til, ryksugaði, borðaði, mataði barnið, svæfði barnið, fór í sturtu og nú sit ég hér og bulla á netinu, ósköp venjulegur dagur bara :)

nema það að ég var næstum því lent í svakalegum áreksri í á leiðinni heim í dag 8|

ég var í mesta sakleysi mínu að keyra framhjá sprengisandi á leiðinni heim þegar það kemur bíll fljúgandi þvert yfir veginn! sem betur fer var enginn bíll við hliðina á mér því ég skutlaði mér á næstu akgrein til að forðast árekstur, ég var nú soldið skelkuð, en kannski líka útaf því að einn strákur í vinnunni er nýbúinn að lenda í svipuðum aðstæðum nema hvað að bíllinn hans eyðilagðist!

jæja...nenni ekki að skrifa meir...

...kannski á morgun ef ég nenni

blessEmilía


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 19:22:17 / millus

Endurkoman!

vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að virkja þetta blogg aftur, gegn því skilyrði að þið verðið duglegri að láta vita að þið séuð að lesa þetta! annars gæti ég farið að gráta og það viljiði ekki!

það er nú ekkert rossalega mikið að frétta af mér (fyrir utan það sem er leyndó og ekki allir mega vita) jólin búin og hið daglega líf hafið á ný, eitt er reyndar breytt og það er að dóttir mín er byrjuð hjá dagmömmu í hafnafirði, sem væri ekki frásögu færandi ef ég byggi ekki í grafarvogi! ég veit að það er mér að kenna að hafa ekki drullast til að finna dagmömmu fyrr, en útaf því að ég var á síðasta snúning með þetta þá gat ég ekki gert miklar kröfur um staðsetningu...

þannig að núna legg ég af stað á morgnanna svona rúmum klukkutíma áður en ég á að mæta í vinnuna þannig að dagurinn fer voðalega mikið í akstur! vonandi getur maður bráðum farin að flytja aftur heim þá er aðeins styttra að fara:) ég ætlaði að flytja um helgina en mamma bannaði mér það vegna þess að það var opið hús í gær heima vegna þess að þau eru að reyna að selja, þá vildi mamma hafa allt tip top, reyndar mætti enginn á þetta opna hús þannig að hefði ekki breytt miklu hefði ég verið þar :/ ég reyni bara að flytja næstu helgi eða eitthvað, kemur í ljós! é

g nenni ekki að skrifa meira, ætla að fara að gera eitthvað af viti!

kveðjaEmilía

p.s. mig langar í bananabrauð! (damn you tobba!)


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 12:43:42 / millus

bless

ég er hætt þessu rugli, það les þetta enginn!

bless, veriði hress:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 03:33:20 / millus

sniðugt...

*Einhver sagði að það tæki um 6 vikur að komast aftur í eðlilegt
ástand eftir fæðingu barns......Einhver veit ekki að um leið og þú
verður móðir heyrir "eðlilegt ástand" sögunni til.

*Einhver sagði að mæður þekki móðurhlutverkið af
eðlishvöt......Einhver hefur aldrei þurft að versla í fylgd þriggja ára
barns.

*Einhver sagði að móðurhlutverkið væri leiðitamt......Einhver
hefur aldrei ferðast í bíl eknum af unglingi með ökuleyfi.

*Einhver sagði að ef þú ert "góð" móðir muni barnið líka "verða
gott"......Einhver heldur að barni fylgi leiðbeiningar og
ábyrgðarskírteini.

*Einhver sagði að "góðar" mæður hækkuðu aldrei róminn við börnin
sín......Einhver hefur aldrei farið út í garð rétt í tæka tíð til að sjá
barnið sitt sparka fótbolta í gegnum eldhúsglugga nágrannans.

*Einhver sagði að menntun væri óþörf í
móðurhlutverkinu......Einhver hefur aldrei þurft að hjálpa 10 ára barni
við að leysa stærðfræðiverkefni.

*Einhver sagði að það væri ómögulegt að elska fimmta barn eins
mikið og fyrsta barn......Einhver á ekki fimm börn.

*Einhver sagði að öll svör við vandamálum tengdum börnum sé hægt
að finna í bókum......Einhver hefur aldrei séð barn troða baun í nef
sitt eða eyra.

*Einhver sagði að erfiðasta kafla móðurhlutverksins væri lokið
við barnsburð og fæðingu......Einhver hefur aldrei horft á eftir krílinu
sínu fara eitt inn í stóra byggingu á fyrsta skóladegi, eða stíga upp í
flugvél á leið í fyrsta íþróttakeppnisferðalagið sitt.

*Einhver sagði að mæður geti unnið verk sitt með augun lokuð og
aðra hönd fyrir aftan bak......Einhver hefur aldrei þurft að halda
tuttugu 5 ára gríslingum ánægðum í barnaafmæli.

*Einhver sagði að mæður geti sleppt hendinni þegar börn þeirra
giftast......Einhver veit ekki að hjónaband felur í sér nýjan son eða
dóttur til að elska.

*Einhver sagði að starfi mæðra sé lokið þegar yngsta barnið fer
að heiman......Einhver á engin barnabörn.

*Einhver sagði að móðir þín viti vel að þú elskir hana svo það
sé óþarfi að tyggja á því......


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 20:29:45 / millus

bloggidíblogg

sælt veri fólkið, ákvað að skella inn einni færslu hér, þó svo að ENGIN lesi þetta. er reyndar sek um að hafa ekki sagt frá þessu en það stendur nú samt á msn-inu mínu...! annars er ekki mikið að frétta, ég sit hérna og læt mér leiðast, heimilisfaðirinn er að spila bridds inní eldhúsi og húsfreyjan inni í tölvunni, Diddú að syngja fyrir mig úr sjónvarpskassanum og dóttirin sofnuð! Það er á svona stundum sem maður nennir að blogga!

Við mæðgurnar fórum ásamt Lise og Ernu Svövu í afmæli til Hlyns Snæs í gær, en hann var eins árs! TIL HAMINGJU ELSKU TENGDASONUR MINN!!!:lol:

Það var fínt, fengum kökur og alls kyns góðgæti. svo var einkunnaafhending í skólanum í gær og það þýðir ekkert að spurja hvað ég fékk útaf því að ég fór ekki, ákvað að fara frekar í kringluna og versla jólagjafir! ætlaði reyndar að gera bæði, en var eitthvað svo sein á ferðinni að ég fór bara í kringluna með Tobbu og Ágústu. þar kláraði ég næstum öll jólagjafainnkaup, bara 2 gjafir eftir. mér tókst þó að kaupa gjöf fyrir dóttir mína, ég ætla ekki að segja hvað það er, hún gæti verið að lesa þetta :haha:

Annars nenni ég ekki að hafa þetta lengra, ætla að fara að gera eitthvað af viti:D

Jólakveðja

Emilía


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 23:14:44 / millus

tékkið á þessu...

rakst á þetta um daginn á vafrinu, fannst það sniðugt...

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA kvenmanns!

8:15 Vakna við að vera föðmuð og kysst
8:30 Er 5kg léttari en í gær
8:45 Morgunmat í rúmið, morgunkorn og ávexti
9:15 Fara í heitt bað og hlusta á Willham Young
10:00 Léttar æfingar í líkamsræktarstöðini með myndarlega og fyndna
þjálfaranum.
10:30 Hand-, andlit- og fótsnyrting á rándyrri snyrtistofu
12:00 Fara á kaffihús með bestu vinkonunum
12:45 Sé kærustu fyrrverandi kærasta míns... hún hefur fitnað um 15kg!
13:00 Versla með vinkonunum og það er endalaus heimild á kortinu
15:00 blundur
16:00 4 tylftir af rósum sent heim frá ónefndum aðdáanda.
16:15 Léttar æfingar og svo í róandi nudd.
17:30 Velja föt fyrir kvöldmatinn og standa fyrir framan spegil.
19:30 Matur við kertaljós með kærastanum
22:00 Heit sturta (ein)
22:30 Njóta ásta
23:30 Krúttlegt spjall og knúserí
23:55 Sofna í faðmi hans

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA karlmanns!


6:00 Vakna!
6:15 Blowjob.
6:30 Skíta alveg svakalega meðan maður les íþróttasíðurnar í mogganum og DV
7:00 Morgunmatur, lambafillet og egg, ristað brauð og kaffi.
7:30 Limmósía kemur og skutlar manni útá flugvöll, fríir drykkir alla leið.
8:15 Hljóðfrá einkaþota til bandaríkjana, graðar unglingsstúlkur með í för
9:30 Ferð með þyrlu á flottasta golfvöllinn
9:45 Klárar fyrstu 9 holurnar á 2 undir pari
11:45 Hádegismatur, 2ja tommu þykkar svínasneiðar og 3-4 bjórar
12:15 Baknudd og blowjob.
12:30 Klárar seinni 9 holurnar á 4 undir pari
14:15 Limmosía útá flugvöll, fríir drykkir
14:30 Ferð með einkaþotu til Bahamas, blundur á leiðinni
15:15 Sjóstangveiðikeppni þar sem allir aðrir keppendur eru berbrjósta
kvenfólk
16:30 Nytt heimsmet, 340p lax halaður inn á 2mín
17:00 Einkaþota heim, erótískt nudd í boði Cameron Diaz... kemur í ljós að
hún kyngir
18:45 Skíta, sturta og rakstur. Ath skilaboð á símsvaranum: nytt starf með
fjórfaldar núverandi tekjur, íslensk getspá að staðfesta lottovinninginn og boð í enn eitt kynsvallið hjá playboy .
19:10 Horfir á fréttirnr á allir leiðinlegustu pólitíkusarnir eru að segja
af sér
19:30 Kvöldmatur: 10kg nautasteik með bökuðum kartöflum og bjór. Allsnaktar
stelpur dansa uppá borðinu meðan mar borðar.
21:30 Kynmök með þremur gullfallegum stelpum og allar földu myndavélarnar
virka fullkomlega
23:00 Nudd og svo í heita pottinn með stelpunum
23:45 Háttatími
23:50 Reka við stanslaust í 12 sekúndur og svo hátt að hundurinn hleypur
útúr herberginu
23:55 Sofna........EINN!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 09:23:11 / millus

Góðan dag

laugardagur, mér líst vel á þetta. Ég ætti að fara að gera eitthvað af viti en ég nenni því ekki, tek kannski jólakortamyndir af dóttur minni, ef hún verður í sæmilegu skapi á eftir, en hún er með eyrnabólgu og er á pensilíni sem fer ekkert alltof vel í skapið á henni.

Prófin eru búin, jei! mér hefði svo sem getað gengið betur, en ég held að ég nái ensku og sögu en fél pottþétt í dönsku og íslensku, þótt að ákveðnar systur hafi reynt að hjálpa mér (takk samt krúsurnar mínar).

Hvað á ég að gefa dóttur minni í jólagjöf? Ég hef nefnilega ekki hugmynd, en fyrir utan hana á ég eftir að kaupa 3-4 gjafir, ætla að skella mér í það á mánudaginn, taka mér jólagjafastússerísfrí úr vinnunni og fara að versla, ég nenni ekki að versla um helgar í brjálæðinu. Fyrir utan það er dóttir mín veik þannig að ég fer ekki mikið með hana út...

En ég er farin í sturtu, það er pissufýla af mér!

Emilía ...


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 23:35:15 / millus

Góðan dag

Ég er komin hingað yfir, þá er bara að sjá hvort mér líkar þetta betur! Annars nenni ég ekki að hafa þetta langt, ég er í blogg fýlu kv. Emilía ...

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill